Íslandshús – gult

2.990 kr.

Íslandshús er lítil húsaröð innblásin af íslenskri byggingarhefð. Byrjað var að nota bárujárn í húsasmíði á Íslandi í kringum árið 1870 og var það vinsælt byggingarefni allt fram að þeim tíma að steypan tók við, upp úr 1935. Húsin voru úr timbri og bárujárnið notað í klæðningar og á þök. Ísland hefur nokkra sérstöðu varðandi þessa notkun á bárujárni og eru húsin því að möru leyti einkennandi fyrir landið. Í seinni tíð hefur orðið vinsælt að mála þessi hús í skærum litum og hafa þau þannig sett litríkan og skemmtilegan svip á Reykjavík og aðra bæi landsins.

Húsin sóma sér vel í gluggakistunni, á bókahillunni eða á skrifborðinu, ein og sér eða öll saman í pínulitlu þorpi.

Nánar
  • Gjafaaskja 
  • Módel: hæð 7 cm × breidd 6 cm
  • Ekki leikfang (4+ ára)
  • Hönnun: Nomad Reykjavík

2 stk. til á lager

Aðeins 2 stk. eftir á lager!

Vörusendingar

  • Vörur sem eru til á lager eru afgreiddar af vörulager næsta virkan dag eftir að pöntun er gerð
  • Frítt að sækja í Holtagarða, 2.hæð
  • Smærri sendingar c.a. 1.900 kr. með Póstinum
  • Sendingarkostnaður höfuðborgarsvæði er 15.000 kr.
  • Sendingarkostnaður utan höfuðborgarsvæðis er 20.000 kr.
  • Heimsendingar utan höfuðborgarsvæðisins eru sendar með Póstinum ef eingöngu um smávöru er að ræða en ef um stærri hluti er að ræða þá komum við þeim á Landflutninga.

    Póstsendingar berast í flestum tilvikum á áfangastað 2-5 virkum dögum eftir pöntun.
Örugg greiðslugátt

Íslandshús - gult
Íslandshús – gult
2.990 kr.
Fyrirspurn um vöru